Okkar ferðir logo

Skíði í Sölden 1. - 8. feb. 2025. Verð frá: 233.000 kr. á mann.* Uppselt

Sölden 1. - 8. feb. 2025 verð frá: 233.000 kr. á mann.* Uppselt er í þessa brottför.

8 dagar, 7 nætur, 7 skíðadagar. 1. til 8. febrúar.
*Lægsta verð er miðað við 5 fullorðna í gistingu í íbúð á Backelar Wirt Apartments Self Catering.

ATH við eigum ekki staðfesta flugmiða lengur í þessa brottför en hafið samband ef þið viljið að við reynum að útvega þá.

Áfram bjóða Okkar Ferðir skíðaferðir til Sölden. Síðasta vika fyrir vetrarfrí í Evrópu. Sölden, sem er í hjarta Ötztal, er ekki aðeins einn vinsælasti ferðamannastaður í Týról heldur einnig einn þekktasti skíðastaður Alpanna. Einn af helstu kostunum er að skíðað er í mikilli hæð, eða frá 1350 metrum og upp í 3340 metra á tveimur jöklum. Í Sölden eru nýjustu lyfturnar samanborið við önnur skiðasvæði auk fjölda snjóbyssa sem tryggja nægan snjó allan veturinn og langt fram á vor. 144 km af troðnum brekkum fyrir byrjendur og lengra komna bjóða upp á nánast ótakmarkaða möguleika. Sölden er eina skíðasvæði Austurríkis sem hefur þrjá tinda hærri en þrjú þúsund metra með stórkostlegum útsýnispöllum með auðveldu aðgengi og síðan eru 4 lyftur í viðbót sem fara upp fyrir 3000 metra. Þetta er eitthvað sem allir skíðaunnendur verða að prófa að minnsta kosti einu sinni á lífsleiðinni.

33 veitingastaðir er í fjöllunum og sá frægasti er ICE-Q matsölustaðurinn sem er 5* matsölustaður í yfir 3000 metra hæð og var byggingin notuðu í James Bond myndinni Spectre, en boðið verður upp á að panta borð þar fyrir þá sem það vilja en greiða þarf staðfestingargjald fyrir borðapöntun.

Ferðaskipulag:
Laugardagur 1. febrúar - laugardagsins 8. febrúar 2025.
Flogið með Icelandair til Innsbruck.
7 dagar á skíðum í Sölden.
Boðið verður upp á ýmsa möguleika á þessum dögum, t.d. Toppana 3 og hádegismat í ICE-Q og fer eftir veðri hvaða daga það verður í boði.

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald 45.000 kr. á farþega. Til að greiða staðfestingargjaldið þarf að senda tölvupóst á info@okkarferdir.is með fjölda og nöfnum á farþegum og við sendum greiðsluslóð til baka.

Við bjóðum eingöngu upp á gistingu á hinu rómaða Backelar Wirt hóteli eða á Backelar Wirt hótel íbúðum. Í boði er gisting á hótelinu með morgunmat og kvöldmat (HB), eða íbúðagistingu þar sem hægt er að vera með morgunmat og kvöldmat eins og á hótelinu eða "Self Catering (SC)" íbúðagisting engin matur innifalin.

Gisting HB.
Backelar Wirt ***
Superior double room verð kr. 340.000 á mann.
Extra bed barn 3-6 ára kr. 243.000 á mann.
Extra bed barn 7-12 ára kr. 289.000 á mann.
Extra bed barn 13 ára + kr. 306.000 á mann.

Single room verð kr. 390.000 á mann.

Gisting HB.
Backelar Wirt Apartments HB
Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 308.000 á mann.
Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 305.000 á mann.
Top 3. 1-3 manns verð frá kr. 303.000 á mann.
Top 4. 1-5 manns verð frá kr. 297.000 á mann.

Gisting SC.
Backelar Wirt Apartments SC
Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 242.000 á mann.
Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 246.000 á mann.
Top 3. 1-3 manns verð frá kr. 240.000 á mann.
Top 4. 1-5 manns verð frá kr. 233.000 á mann.

Nánar um hótel Backelar Wirt .

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Innsbruck með Icelandair
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Öll almenn aðstoð.

Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Akstur til og frá flugvelli.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.