Okkar ferðir logo

Backler Wirt***

Lang vinsælasta hótelið okkar í Sölden. Það er mjög vel staðsett einungis 150 metra frá Gaislachkogelbahn sem tekur þig upp í yfir 3000 metra hæð.
Það er óhægt að segja að þetta sé ski in ski out hotel, þú tekur skíðin af þér og gengur yfir götuna 150 beint inn á hótelið.

Lítil en mjög góð heilsulind er á hótelinu og hafa gestir aðgang að henni þar eru þrjár mismunandi gufuböð og hvíldaraðstaða.

Maturinn á hótelinu er rómaður, morgunverðarhlaðborð með góðu úrvali og kvöldmaturinn er 4 rétta þar sem valið er á milli mismunandi forrétta og aðalrétta. Salat bar og desert.

Hótelið er notalegt og vel við haldið. Herbergin eru rúmgóð og eru frá 22-29 m2 Öll herbergin eru með svalir. Á herbergjunum eru rúmgóð baðhergi, hárþurrka og annaðhvort baðkar eða sturta. Sjónvarp er á öllum herbergjum og öryggis skápur sem við mælum með því að nota. Baðsloppar eru á herbergjunum til að nota þegar farið er í heilsulindina. Herbergin eru Non smoking. Einnig er frítt internet á hótelinu.

Þrjá tegundir af herbergjum eru í boði
Double room Panorama, Herbergin eru á efstu hæð, þau eru 22-24 fermetrar og með þægilegar innréttingar.
Double room Superior, sem eru rúmgóð 25 fermetra herbergi með þægilegum húsgögnum og svefn sófa.
Double room Zabre, eru 29 fermetrar með svefnsófa og litlu svæði til að sitja við.

Sama verð er á Panorama og Superior og er hægt að óska eftir öðru hvoru en við getum ekki tryggt að þau séu laus á öllum tímum.
Zaber eru örlítið dýrari.

Hægt er að vera með aukarúm fyrir börn í herbergjunum.

Skíðaleiga er á hótelinu og góð aðstaða til að geyma skíði og skó yfir nóttina.

Hægt er að fá herbergi sem hægt er að opna á milli fyrir fjölskyldur.