Okkar ferðir logo

Jól í Sölden 19. - 26. desember 2026. Örfá sæti laus.

Það er gaman að halda jólin í Sölden. Verð frá 332.000 kr á mann morgunmatur og kvöldmatur innifalinn. *

8 dagar, 7 nætur, 7 skíðadagar.
*Lægsta verð er miðað við 5 fullorðna í gistingu í íbúð á Backelar Wirt Apartments.
Síðast komust færri að en vildu.

Ferðir okkar til Sölden hafa heppnast einstaklega vel og umsagnir gesta okkar verið frábærar. Hótelið, maturinn, skíðabrekkurnar, fararstjórnin, þjónustan allt fær þetta hæstu einkunn sem gerir okkur stolta af því að bjóða upp á þessar ferðir.

Ferðaskipulag

  • Laugardagur 19. desember - laugardagsins 26. desember 2026
  • Flogið með Icelandair til Innsbruck.
  • Farastjóri Okkar Ferða mun á flestum dögum setja upp skíða plan þar sem brekkur og lyftur er settar saman í eina heild fyrir daginn þannig að sem mest fáist út úr deginum.

Til að tryggja sér sæti í ferðina þá sendið okkur póst á info@okkarferdir.is og greiða þarf staðfestingargjald kr. 45.000 á farþega eða velja bóka hér fyrir neðan.

Eingöngu er boðið upp á að kaupa allan pakkan hjá okkur þ.e.a.s. flug og gistingu og er gistingin á hótel Bäckelarwirt með morgunmat og kvöldmat.

Einnig er innifalið:

  • 21 eða 22. desember, heimsókn í Sölsch brugghúsið.
    Farið með leigubílum í brugghúsið, lagt af stað klukkan 16:30. Bruggmeistarinn tekur á móti okkur, við smökkum bjórinn þeirra og hann segir okkur frá framleiðslunni og sögunni á bak við þetta brugghús.

Nánar um Sölch brugghús https://shop.soelsch.com/?lang=en

  • 23 Desember, 5 rétta lúxus kvöldverður í Sahne Stuberl.
    Farið er með leigubílum í Fjallakofan Sahne Stuberl klukkan 18:00 og komið til baka um klukkan 21:30

Nánar um Sahne Stuberl https://www.sahnestueberl.com/

  • 24 Desember, 7 rétta hátíðar kvöldverður á hótelinu

Bäckelarwirt með hálfu fæði

  • Superior double room (dbl) verð kr. 399.000 á mann.
  • Extra bed dbl barn kr. 339.000 á mann.
  • Single room verð kr. 506.000 á mann.
  • Studio 2 fullorðnir og 2 börn verð kr. 385.000 á mann.
  • Studio kr. 413.000 á mann.
  • Extra bed Studio barn kr. 340.000 á mann.
  • Nánar um hótel Backelarwirt.

Bäckelarwirt Apartments með hálfu fæði

  • Tvær mismunandi íbúðir í boði
  • Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 332.000 á mann.*
  • Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 334.000 á mann.*
    *verð á íbúð miðast við 5 í íbúð

Nánar um Bäckelarwirt Apartments hér

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Innsbruck með Icelandair.
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Akstur til og frá flugvelli í Austurríki
Öll almenn aðstoð.

Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.

Sölden í allri sinni dýrð