Okkar ferðir logo

Sölden 19. - 26. desember 2026

Það er gaman að halda jólin í Sölden. Verð frá 332.000 kr á mann. *

8 dagar, 7 nætur, 7 skíðadagar.
*Lægsta verð er miðað við 5 fullorðna í gistingu í íbúð á Backelar Wirt Apartments.
Síðast komust færri að en vildu.

Ferðir okkar til Sölden hafa heppnast einstaklega vel og umsagnir gesta okkar verið frábærar. Hótelið, maturinn, skíðabrekkurnar, fararstjórnin, þjónustan allt fær þetta hæstu einkunn sem gerir okkur stolta af því að bjóða upp á þessar ferðir.

Ferðaskipulag

  • Laugardagur 19. desember - laugardagsins 26. desember 2026
  • Flogið með Icelandair til Innsbruck.
  • Farastjóri Okkar Ferða mun á flestum dögum setja upp skíða plan þar sem brekkur og lyftur er settar saman í eina heild fyrir daginn þannig að sem mest fáist út úr deginum.

Til að tryggja sér sæti í ferðina þá sendið okkur póst á info@okkarferdir.is og greiða þarf staðfestingargjald kr. 45.000 á farþega.

Eingöngu er boðið upp á að kaupa allan pakkan hjá okkur þ.e.a.s. flug og gistingu og er gistingin á hótel Bäckelarwirt með morgunmat og kvöldmat.

Einnig er innifalið:

Kvöldverður í Sahnestuberl þann 23 desember, sem er fjallakofi þar sem borinn er fram 6-9 rétta kvöldverður. Farið er með leigubílum upp í fjallakofan og er lagt af stað frá hótelinu klukkan 18:00.

Sérstakur 7 rétta hátíðarkvöldverður er á hótelin þann 24. desember.

Heimsókn í Brugghús, bjórsmökkun einn eftirmiðdag, farið með leigubílum frá hótelinu klukkan 16:30 og komið til baka um það bil klukkutíma seinna.


Verðlisti

Bäckelarwirt með hálfu fæði

  • Superior double room verð kr. 399.000 á mann.
  • Extra bed barn 3-6 ára kr. 277.000 á mann.
  • Extra bed barn 7-12 ára kr. 332.000 á mann.
  • Extra bed barn 13+ ára kr. 355.000 á mann.
  • Single room verð kr. 506.000 á mann.
  • Family Room verð kr. 415.000 á mann.
  • Nánar um hótel Backelarwirt.

Bäckelarwirt Apartments með hálfu fæði

  • Tvær mismunandi íbúðir í boði
  • Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 332.000 á mann.*
  • Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 334.000 á mann.*
    *verð á íbúð miðast við 5 í íbúð

Nánar um Bäckelarwirt Apartments hér

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Innsbruck með Icelandair.
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Akstur til og frá flugvelli.
Öll almenn aðstoð.

Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.

Sölden í allri sinni dýrð