Verð frá: 379.900 kr á mann.*
8 dagar, 7 nætur, 6 hjóladagar.
*Lægsta verð er miðað við 2 fullorðna í herbergi á Hotel Central.
Komdu með Okkar ferðum í rafhjólaferð í Seefeld þar sem við venjulega erum á gönguskíðum en núna ætlum við að hjóla.
Upplifðu ógleymanlega rafhjólaviku í hjarta Týrólsku Alpanna. Við gistum í hinum fallega bæ Seefeld og hjólum með reyndum leiðsögumanni ásamt íslenskum fararstjóra. Á hverjum degi býður nýtt ævintýri: friðsælir fjalladalir, fjallastígar með stórbrotnu útsýni og ferðir yfir landamærin til Bæjaralands. Svæðið býður upp á einstaklega fjölbreyttar leiðir sem henta nánast öllum getustigum.
Seefeld stendur á sólríkri hásléttu í um 1.180 metra hæð, milli fjallgarðanna Wetterstein og Karwendel og aðeins um 17 km frá Innsbruck. Keppt var í norrænum greinum í Seefeld á tvennum vetrarólympíuleikum, árin 1964 og 1976, og þar fór heimsmeistaramótið í norrænum skíðagreinum fram árið 2019. Þekktasta kennileiti bæjarins er Seekirchen, lítil barokk kapella. Í miðbænum er göngugata með kaffihúsum, verslunum og ekta týrólskri stemningu, og stutt er að ganga að vatninu Wildsee.
Ferðaskipulag
- Dagur 1. Sunnudagur 9. maí: Flug FI532 frá Keflavík til München og rútuferð til Seefeld. Innritun á hótel og kvöldverður.
- Dagar 2-7: Fimm hjóladagar með leiðsögn og einn frjáls dagur.
- Dagur 8 Sunnudagur 16. maí: Rútuferð á flugvöllinn í München og flug FI533 heim til Keflavíkur.
- Farastjóri Okkar Ferða er á staðnum reiðubúinn til aðstoðar
Tillaga að dagleiðum
Fararstjóri skipuleggur hjólaferðirnar eftir aðstæðum hverju sinni í samráði við innlendan leiðsögumann sem fer fyrir hópnum alla hjóladagana. Eftirfarandi leiðarlýsingar eru til viðmiðunar en fararstjóri getur breytt dagskrá miðað við getustig hópsins.
Sunnudagur - ferðadagur
Fararstjóri tekur á móti hópnum. Við förum með rútu á hótelið í Seefeld.
Mánudagur til Laugardagur - Hjóladagar
Við byrjum fyrsta daginn á stuttri tæknikennslu (30–40 mínútur) þar sem farið er yfir grunnatriði í hjólameðferð og öryggi.
Fyrstu kynni á hásléttunni
Við byrjum á því að kanna fallegu Seefeld-hásléttuna saman. Í þessari fyrstu ferð venjast allir rafhjólunum og leiðsögumennirnir kynnast reynslu, getu og óskum hópsins. Þar sem leiðsögumennirnir eru tveir getum við skipt hópnum eftir getu þegar þörf krefur, svo allir hjóli á sínum hraða.
Gaistal-dalurinn
Gaistal er einn tilkomumesti fjalladalur svæðisins, umkringdur stórbrotnu fjallalandslagi. Þar eru hefðbundnir fjallaskálar og nóg af tækifærum til að njóta umhverfisins í rólegheitum.
Karwendel-náttúru garðurinn
Karwendel er einn stærsti náttúrugarður Alpanna. Við könnum þrjá dali í garðinum, hjólum um skóga og stórfenglegt fjallalandslag.
Yfir landamærin til Bæjaralands
Þessar ferðir hafa annan blæ, með heillandi þorpum, fallegum útsýnisstöðum og fjölbreyttu landslagi.
Hvíldardagur verður verður ákveðin í samráði við leiðsögumann á staðnum með tilliti til veðurs og annara aðstæðna.
Enginn dagur eins
Leið hvers dags er valin út frá getu hópsins, veðri og ástandi stíga. Markmiðið er ekki að safna kílómetrum heldur að upplifa svæðið, njóta fjallanna og kynnast því besta sem Seefeld og nágrenni hafa uppá að bjóða.
Sunnudagur - ferðadagur
Allt gott tekur enda og nú förum við með rútunni til Munchen, flogið heim til Íslands með Icelandair
Til að tryggja sér sæti í ferðina er hægt að velja bóka hér að ofan eða senda póst á info@okkarferdir.is greiða þarf staðfestingargjald kr. 45.000 á farþega.
Eingöngu er boðið upp á gistingu á hótel Central
Nánar um hótel Central

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Munchen með Icelandair.
Rúta til og frá Munchen
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Leiga á rafmagnsfjallahjóli KTM Macina Team 772/792 eða sambærilegt.
Hjóla hjálmur.
Gisting í 7 nætur á Hotel Central 4* með hálfu fæði (morgun og kvöldmatur). Nestispakki á frjálsa deginum
5 hjóladagar með leiðsögumanni
Öll almenn aðstoð
Ekki innifalið í verði:
Drykkir.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.
Ráðlagður búnaðarlisti
*Rafmagnsfjallahjól (innifalið)
*Hjálmur (innifalið)
*Hjólabuxur með púða
*Hjólahanskar
*Íþróttaskór (helst með flötum botni)
*Bakpoki fyrir: drykk, orkustykki, farsíma, peninga, skilríki, vind-/regnjakka og aukaföt
*Sólarvörn
Undirbúningur
Hjólaferðir Okkar ferða hf. eru fyrir öll getustig.
Dagleiðirnar í þessari hjólaferð eru um 20-55 km. Hraði dagleiða er með það að fyrirrúmi að upplifa umhverfið og njóta þess sem á vegi okkar verður. Til að hámarka ánægju og upplifun ráðleggjum við fólki að æfa fyrir ferðina með því að fara í nokkra lengri dagstúra og fjárfesta í hjólabuxum með púða eða gelhnakki.
Við skilgreinum hjólaferðirnar okkar í erfiðleikastig 1-5 þar sem 5 er erfitt og 1 er mjög létt. Þessi ferð er erfiðleikastig 3.
Vinsamlegast athugið að ef þátttakendur hafa ekki þá getu sem nauðsynleg er fyrir hjóladaga ferðarinnar getur fararstjórinn farið fram á að viðkomandi sleppi einhverjum degi/dögum. Í staðinn er hægt að nýta sér aðstöðu hótelsins eða fara í hjólaferðir á eigin vegum.