Okkar ferðir logo

Hotel Central ****

Hotel Central er frábært fjölskyldu rekið hótel sem er staðsett í miðbæ Seefeld, á móti Kurpark og við upphaf göngusvæðisins.

Nútímaleg herbergin á Central Hotel eru innréttuð með björtum viðarhúsgögnum og eru með svalir, kapalsjónvarp og baðherbergi einnig er ókeypis Wi-Fi.

Góð heilsulind er á hótelinu og hafa gestir aðgang að henni. Þar eru þrjú mismunandi gufuböð, hvíldaraðstaða og líkamsræktarstöð.

eitingastaðurinn býður upp á austurríska og alþjóðlega matargerð og sérrétti frá Týról. Fjölbreytt úrval af grænmetisréttum er í boði. Hálft fæði felur í sér morgunverðarhlaðborð með heilsusamlegum valkostum og 4 rétta kvöldverð með úrvali rétta, ásamt súpu- og salathlaðborðum.

Skíðaleiga er staðsett rétt við hótelið þar sem hægt er að leigja gönguskíðabúnað.