8 daga 7 nætur. 9. til 16. janúar.
Verð frá 317.000 kr á mann miðað við tvo saman í herbergi.
Við förum á til Seefeld á gönguskíði í byrjun janúar 2027. Þetta verður blanda af kennslu undir leiðsögn Ólympíufara og frjálsum tíma. Ferðin er bæði fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref og lengra komna sem vilja læra meira.

Kristrúnu Guðnadóttur þarf varla að kynna fyrir þeim sem hafa áhuga á skíðagöngu, hún hefur verið okkar allra fremsta skíðagöngu kona til margra ára, margfaldur íslandsmeistari og Ólympíufari. Kristrún mun sjá um kennslu og fararstjórn í þessari ferð og njóta aðstoðar Ásgeirs G. Bjarnasonar við fararstjórn. Ásgeir hefur verið fararstjóri í skíðaferðum Okkar Ferða við góðan orðstír undanfarinn ár.

Gist verður á glæsilegu 4* hóteli í bænum þar sem morgunmatur og kvöldmatur er innifalinn. Á hótelinu er notaleg heilsulind með sauna, infrarauðri sauna og eimbaði.
Flogið er með áætlunarflugi Icelandair til München og rúta til og frá Seefeld.
Hópnum verður getuskipt í tvo hópa til að allir fái sem mest út úr leiðsögn. Boðið verður upp á kennslu og æfingar flesta dagana í 2-3 tíma á dag, annar hópurinn fyrir hádegi og hinn eftir hádegi. Þann tíma sem er ekki skipulagður hægt að æfa sig og ganga á eigin vegum.
Einnig er þáttakendum frjálst að skíða á eigin forsendum þegar þeim passar en markmiðið er að allir njóti sem best.
Nánar um Seefeld
Seefeld er rúmlega 3.400 manna bær í um 1.200 m hæð á hásléttu í Tíról, umvafin Wetterstein-, Mieminger- og Karwendelfjöllunum. Bærinn dregur nafn sitt af miklu vatna svæði sem var þar áður fyrr. Þar hafa verið haldin mörg stórmót í norrænum greinum, m.a. Ólympíuleikarnir 1964, 1976, heimsmeistaramót 1985 og 2019. Einnig hefur svæðið nokkrum sinnum verið valið besta gönguskíðasvæðið í Evrópu.
Seefeld svæðið er ákjósanlegt fyrir skíðagöngu með yfir 245 km af vel skilgreindum brautum sem henta bæði byrjendum og lengra komnum. Brautir henta bæði til þess að ganga hefbundin stíl og skauta stíl. Svæðið er tengt milli fimm þorpa (Seefeld, Leutasch, Mösern, Reith og Scharnitz), sem opnar fyrir fjölbreyttar dagleiðir og nýjar leiðir dag eftir dag. Svæðið er snjóöruggt en þar er líka snjóframleiðsla á ákveðnum svæðum til að tryggja nægan snjó.
Kláfurinn upp á Rosshütte (1.784 m) gefur greiðan aðgang að hærri svæðum og stórkostlegt útsýni; þar er einnig vinsæll veitingastaður.
Ferðaskipulag:
Laugardagur 09. janúar - Laugardagsins 16. janúar 2027.
Flogið með Icelandair til München.
Innifalið í verði:
- Flug með Icelandair og flugvallarskattar
- Ferðir milli flugvallarins í München og hótelsins í Seefeld
- Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra stjörnu hóteli
- Morgunverður
- Kvöldverður
- Aðgangur að heilsulind
- Aðgangskort í skíðagöngubrautir svæðisins
- Íslensk fararstjórn
- Aðstoð við leigu á búnaði.
- Öll almenn aðstoð.
- Ekki innifalið í verði:
- Aukagjald fyrir skíði í flug
- Forfalla- og ferðatrygging
- Þjórfé
- Hádegisverður
- Drykkir
- Gistináttaskattur
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 45.000 per farþega. Til að greiða staðfestingargjaldið þarf að senda tölvupóst á info@okkarferdir.is með fjölda og nöfnum á farþegum og við sendum greiðsluslóð til baka.