Okkar ferðir logo

Skíðað í Sölden Jólin 2024 - dagana 21. - 28. desember. Uppselt.

Við ætlum til Sölden um jólin annað árið  í röð.
Síðast komust færri að en vildu.

Ferðir okkar til Sölden hafa heppnast einstaklega vel og umsagnir gesta okkar verið frábærar. Hótelið, maturinn, skíðabrekkurnar, fararstjórnin, þjónustan allt fær þetta hæstu einkunn sem gerir okkur stolta af því að bjóða upp á þessar ferðir áfram.

Að fljúga til Innsbruck með Icelandair um hádegi á laugardeginum 21 desember, koma okkur fyrir á hótelinu eftir um það bil klukkustundar akstur frá flugvellinum, setjast niður við vel framreiddan kvöldverð á hótelinu er bara frábær byrjun á jólafríi. Eiga þá framundan sjö daga á skíðum þar sem við förum ekki heim fyrr en seinnipartinn laugardaginn 28. desember.

Sölden, sem er í hjarta Ötztal, er ekki aðeins einn vinsælasti ferðamannastaður í Týról heldur einnig einn þekktasti skíðastaður Alpanna. Einn af helstu kostum er að skíðað er í mikilli hæð, eða frá 1350 metrum og upp í 3340 metra á tveimur jöklum.
Í Sölden eru nýjustu lyfturnar samanborið við önnur skíðasvæði auk fjölda snjóbyssa sem tryggja nægan snjó allan veturinn og langt fram á vor.
144 km af troðnum brekkum fyrir byrjendur og lengra komna bjóða upp á nánast ótakmarkaða möguleika.
Sölden er eina skíðasvæði Austurríkis sem hefur þrjá tinda hærri en þrjú þúsund metra með stórkostlegum útsýnispöllum með auðveldu aðgengi og síðan eru 4 lyftur í viðbót sem fara upp fyrir 3000 metra. Þetta er eitthvað sem allir skíðaunnendur verða að prófa að minnsta kosti einu sinni á lífsleiðinni.

33 veitingastaðir eru í fjöllunum og sá frægasti er ICE-Q matsölustaðurinn sem er 5* matsölustaður í yfir 3000 metra hæð og var byggingin notuðu í James Bond myndinni Spectre, en boðið verður upp á að panta borð þar fyrir þá sem vilja, en greiða þarf staðfestingargjald fyrir borðapöntun.

Ferðaskipulag:
Laugardagur 21. desember - laugardagsins 28. desember 2024.
Flogið með Icelandair til Innsbruck.
7 dagar á skíðum í Sölden.
Farastjóri Okkar Ferða mun á flestum dögum setja upp skíða plan þar sem brekkur og lyftur er settar saman í eina heild fyrir daginn þannig að sem mest fáist út úr deginum.

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 45.000 per farþega.
Til að greiða staðfestingargjaldið þarf að senda tölvupóst á info@okkarferdir.is með fjölda og nöfnum á farþegum og við sendum greiðsluslóð til baka.

Eingöngu er boðið upp á gistingu á hótel Backelarwirt og er eingöngu boðið upp á gistingu með morgunmat og kvöldmat.

Sérstakur 7 rétta hátíðarkvöldverður er þann 24. desember og er hann einnig innifalinn.

Backelarwirt ***
Superior double room verð kr. 389.000 á mann.
Extra bed barn 3-6 ára kr. 252.000 á mann.
Extra bed barn 7-11 ára kr. 299.000 á mann.
Extra bed barn 12+ ára kr. 348.000 á mann.
Single room verð kr. 439,000 á mann.
Nánar um hótel Backelarwirt.

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Innsbruck með Icelandair.
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Akstur til og frá flugvelli.
Öll almenn aðstoð.

Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.