Sölden 27. jan - 03. feb 2024 verð frá 188.000 kr á mann.*
8 daga 7 nætur. 27. janúar til 03. febrúar. Lægsta verð er miðað við 5 fullorðna í gistingu í íbúð á Haus Bergkristall.
Eftir frábærar viðtökur veturinn 2022 til 2023 höldum við hjá Okkar Ferðum áfram að bjóða skíðaferðir til Sölden. Sölden, sem er í hjarta Ötztal, er ekki aðeins einn vinsælasti ferðamannastaður í Týról heldur einnig einn þekktasti skíðastaður Alpanna. Einn af helstu kostunum er að skíðað er í mikilli hæð, eða frá 1350 metrum og upp í 3340 metra á tveimur jöklum. Í Sölden eru nýjustu lyfturnar samanborið við önnur skiðasvæði auk fjölda snjóbyssa sem tryggja nægan snjó allan veturinn og langt fram á vor. 144 km af troðnum brekkum fyrir byrjendur og lengra komna bjóða upp á nánast ótakmarkaða möguleika. Sölden er eina skíðasvæði Austurríkis sem hefur þrjá tinda hærri en þrjú þúsund metra með stórkostlegum útsýnispöllum með auðveldu aðgengi. En í viðbót við það eru á Ötztal svæði amk tveir toppar í viðbót þar sem þú ferð með lyftu upp fyrir 3.000 metra. Þetta er eitthvað sem allir skíðaunnendur verða að prófa að minnsta kosti einu sinni á lífsleiðinni.
Hótelin sem Okkar Ferðir bjóða upp á eru í göngufæri við helstu skíðalyfturnar.
33 veitingastaðir er í fjöllunum og sá frægasti er ICE-Q matsölustaðurinn sem er 5* matsölustaður í yfir 3000 metra hæð og var byggingin notuðu í James Bond myndinni Spectre, en boðið verður upp á að panta borð þar fyrir þá sem það vilja en greiða þarf staðfestingargjald fyrir borðapöntun.
Ferðaskipulag:
Laugardagur 27. janúar - Laugardagsins 03. febrúar 2024.
Flogið með Icelandair til Salzburg.
6 dagar á skíðum í Sölden.
Boðið verður upp á ýmsa möguleika á þessum dögum, t.d. Toppana 3 og hádegismat í ICE-Q og fer eftir veðri hvaða daga það verður í boði.
Flogið með Icelandair frá Salzburg til Keflavíkur.
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 45.000 per farþega. Til að greiða staðfestingargjaldið þarf að senda tölvupóst á info@okkarferdir.is með fjölda og nöfnum á farþegum og við sendum greiðsluslóð til baka.
Ýmsir gistimöguleikar eru í boði, með morgunmat og kvöldmat (HB), með morgunmat (B&B) og íbúðagisting engin matur innifalin (SC).
Haus Bergkristall.
Apartment 1-5 manns frá kr. 188.000 á mann.
Nánar um Haus Bergkristall.
Gisting HB.
Backelar Wirt ***
Superior double room verð kr. 307.000 á mann.
Extra bed barn 3-6 ára kr. 145.000 á mann.
Extra bed barn 7-12 ára kr. 187.000 á mann.
Extra bed barn 13 ára + kr. 204.000 á mann.
Backelar Wirt Apartments HB
Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 273.000 á mann.
Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 268.000 á mann.
Top 3. 1-3 manns verð frá kr. 271.000 á mann.
Top 4. 1-5 manns verð frá kr. 262.000 á mann.
Backelar Wirt Apartments SC
Top 1. 1-5 manns verð frá kr. 207.000 á mann.
Top 2. 1-5 manns verð frá kr. 209.000 á mann.
Top 3. 1-3 manns verð frá kr. 208.000 á mann.
Top 4. 1-5 manns verð frá kr. 198.000 á mann.
Nánar um hótel Backelar Wirt .
Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Salzburg með Icelandair
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Öll almenn aðstoð.
Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Akstur til og frá flugvelli.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 45.000 per farþega. Til að greiða staðfestingargjaldið þarf að senda tölvupóst á info@okkarferdir.is með fjölda og nöfnum á farþegum og við sendum greiðsluslóð til baka.