Tarragona og Penedès · 21.–26. maí · 6 dagar, 5 nætur
Með Dóra DNA og Ásgeiri G. Bjarnasyni
kr. 389.900 á manna í tveggja manna herbergi. 434.900 í eins manns herbergi.
Langar þig að kynnast víni þar sem það verður til, hitta fólkið sem býr það til og borða mat sem þú gleymir ekki? Í þessari ferð heimsækjum við litlar og einstakar víngerðir í Katalóníu, smökkum vín beint úr kjallaranum og njótum matar í hæsta gæðaflokki. Ferðinni lýkur með ógleymanlegum kvöldverði sem Gunnar Karl Gíslason á Dill reiðir fram undir berum himni á vínekru.

Hópurinn er lítill, að hámarki 20 manns, svo upplifunin verður persónuleg og afslöppuð.
Tarragona, rómversk perla við Miðjarðarhafið
Við gistum á Hotel Astari í Tarragona, fallegri borg við sjóinn sem Rómverjar kölluðu Tarraco. Hún var ein mikilvægasta borg Rómaveldis á Íberíuskaga og rómversku rústirnar eru á heimsminjaskrá UNESCO. Hringleikahúsið stendur við ströndina og gamli bærinn er fullur af þröngum götum, litlum torgum og frábærum veitingastöðum. Tarragona er líka vagga castells, katalónsku mannturnanna sem eru heimsfrægir.
Víngerðirnar sem við heimsækjum

Partida Creus. Ítölsku hjónin Antonella og Massimo störfuðu áður sem arkitektar. Þau seldu stofuna sína, fluttu í þorpið Bonastre og fóru að bjarga yfirgefnum ekrum með gömlum katalónskum vínviði. Vínin eru hrein náttúruvín, gerjuð með villigeri og án nokkurra aukaefna. Partida Creus er í dag ein eftirsóttasta víngerð heims í náttúruvínum.

Can Suriol del Castell de Grabuac. Fjölskylduvíngerð á sögufrægri kastalalandareign í hjarta Penedès. Fyrstu heimildir um víngerð á staðnum eru frá árinu 1174, svo þar er nærri þúsund ára vínsaga. Ræktunin er lífræn og lífefld (biodynamic) og þar eru framleidd hvítvín, rauðvín og cava.

La Guixera. Lítil víngerð í þorpinu Vila-rodona, í sveitunum rétt inn af Tarragona. Þar tekur víngerðarmaðurinn Pol á móti okkur. Við göngum með honum út á ekrurnar, finnum jarðveginn undir fótum og fylgjum þrúgunni alla leið inn í víngerðina. Þar smökkum við vínin hans beint úr kjallaranum, meðal annars vín úr sumoll, gamalli katalónskri þrúgu sem fáir utan héraðsins þekkja.
Matarupplifun
El Cup Vell. Í þröngri götu vel falinn í gamla bænum í Tarragona er hurð án skiltis. Fyrir innan er einn eftirsóttasti veitingastaður borgarinnar. Hann var opnaður árið 2017 og sóttu stofnendurnir innblástur í leynilega veitingastaði í Japan og víðar við Miðjarðarhafið. Þar er enginn matseðill, heldur ákveða ungu kokkarnir réttina dag hvern eftir því sem markaðurinn býður upp á. Við njótum þar 7 rétta máltíðar með pöruðum vínum.
Loka kvöldverður með Gunnari Karli. Ferðinni lýkur á vínekrunni hjá Can Suriol, þar sem Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumaðurinn á bak við Dill, eldar fyrir hópinn úti á milli gömlu húsanna við grillið. Íslensk matargerðarlist mætir katalónskum hráefnum og vínum, og betri endi á ferðinni er varla hægt að hugsa sér.
Dagskrá
Föstudagur 21. maí - KomudagurFlogið með Icelandair til Barcelona og ekið til Tarragona. Eftir innritun förum við í létta göngu um gamla bæinn og bendum á bestu veitingastaðina.
Laugardagur 22. maí - La Guixera Vínekrur, rómversk saga og veislaMorgunheimsókn í víngerð þar sem gengið er um ekrurnar og víngerðina og vínin smökkuð. Frjáls tími síðdegis. Um kvöldið göngum við um rómverska Tarragona og endum á 7 rétta kvöldverði á El Cup Vell.
Sunnudagur 23. maí - Partida CreusHeimsókn til Antonellu og Massimos í Bonastre, með vínsmökkun og smáréttum beint frá býli.
Mánudagur 24. maí - Frjáls dagurStröndin, söfnin, markaðirnir eða einfaldlega góður hádegisverður á torginu. Dagurinn er þinn.
Þriðjudagur 25. maí - Can Suriol og loka kvöldverðurVið ökum inn í hjarta Penedès, skoðum vínekrur og kjallara Can Suriol og smökkum vínin. Ferðinni lýkur með lokakvöld verði sem Gunnar Karl Gíslason reiðir fram, úti á milli gömlu húsanna við grillið.
Miðvikudagur 26. maí - HeimferðEkið út á flugvöll og flogið heim.
Verð 389.900 kr. á mann í tveggja manna herbergi 433.000 kr. í eins manns herbergi
Innifalið
- Flug með Icelandair og innritaður farangur
- Allar rútuferðir, til og frá flugvelli ásamt vínheimsóknum
- Gisting á Hotel Astari í 5 nætur með morgunverði
- Vínsmökkun og smáréttir í öllum vínheimsóknum
- 7 rétta kvöldverður með pöruðum vínum á El Cup Vell
- Loka Kvöldverður framreiddur af Gunnari Karli Gíslasyni
- Fararstjórn Dóra DNA og Ásgeirs G. Bjarnasonar
Ekki innifalið
- Máltíðir sem ekki eru taldar upp hér að ofan
- Aðgangseyrir að söfnum og öðrum áhugaverðum stöðum
Takmarkaður fjöldi sæta - tryggðu þér sæti í tíma!