Verð frá: 349.900 kr á mann.*
8 dagar, 7 nætur, 5 göngudagar.
*Lægsta verð er miðað við 2 fullorðna í herbergi á Backelar Wirt.
Komdu með Okkar ferðum í göngu í fjallasölum Ötztal dalsins í austurrísku Ölpunum í haust.
Í Ötztal-dalnum eru fjölbreyttar gönguleiðir á svæðunum í kringum Sölden, Längenfeld, Obergurgl og Vent. Allt í allt eru 1.600 km af gönguleiðum á svæðinu, stórkostlegt útsýni, fossar, fjallaskálar, framúrskarandi veitingastaðir og svo mætti lengi telja.
Ferðaskipulag
- Fimmtudagur 3. - fimmtudagsins 10. september
- Flogið með Icelandair til Zurich
- Farastjóri Okkar Ferða er á staðnum reiðubúinn til aðstoðar
Tillaga að dagleiðum
Fararstjóri skipuleggur gönguferðirnar eftir aðstæðum hverju sinni í samráði við innlendan leiðsögumann sem fer fyrir hópnum alla göngudagana. Eftirfarandi leiðarlýsingar eru til viðmiðunar en fararstjóri getur breytt dagskrá miðað við getustig hópsins.
Fimmtudagur - ferðadagur
Fljúgum til Zurich með Icelandair þar sem fararstjóri tekur á móti hópnum. Við förum með rútu á hótelið í Sölden.
Föstudagur - Gaislachkogel - Marias Alm - Sölden
Falleg og létt ganga frá miðstöð Gaislachkogel að Marias Alm, einnig þekkt sem Nature Experience Trail.
Dagurinn hefst með kláfferð upp í Gaislachkogel (2.174 m). Þaðan göngum við niður í átt að Hochsölden þar sem við tökum stutta hvíld og njótum stórkostlegs útsýnis. Gangan heldur áfram að Marias Alm, vinsælum fjallaskála þar sem við fáum okkur veitingar. Að lokinni hressingu göngum við áfram niður til Sölden.
Vegalengd: 10-12 km
Hækkun: 50 m
Lækkun: 790 m
Tími: 4-5 klst
Hæsti punktur: 2.174 m
Erfiðleikastig: Létt
Laugardagur - Umhausen - Stuibenfall foss - Niederthai - Wiesle veitingaskáli - Längenfeld
Fjölbreytt og einstaklega falleg gönguleið með fossum, fjallaþorpum og víðáttumiklu útsýni. Gangan hefst í Umhausen og liggur að hinum tilkomumikla Stuibenfall-fossi, hæsta fossi Týról. Þaðan göngum við áfram til Niederthai og að Wiesle þar sem við stoppum til hressingar áður en haldið er niður til Längenfeld.
Vegalengd: 12-14 km
Hækkun: 700 m
Lækkun: 800 m
Tími: 4,5-5,5 klst
Erfiðleikastig: Miðlungs
Sunnudagur - Hohe Mut - Schönwieshütte - Svissneskur furuskógur - Obergurgl
Við tökum kláf upp í Hohe Mut fjallastöð (2.670 m) fyrir ofan Obergurgl. Þaðan göngum við að Schönwieshütte og síðan niður um fallegan svissneskan furuskóg aftur til Obergurgl. Leiðin býður upp á stórbrotið fjallaútsýni allan daginn.
Vegalengd: 9-10 km
Hækkun: 150 m
Lækkun: 770 m
Tími: 3,5-4 klst
Erfiðleikastig: Miðlungs
Mánudagur – Hvíldardagur
Frjáls dagur til að slaka á, skoða nærliggjandi svæði, njóta heilsulinda, brugghúsheimsókn eða fara í styttri gönguferðir.
Þriðjudagur - Tiefenbachferner - Vent
Gangan hefst við Tiefenbachferner jökulsvæðið og liggur niður í fallega fjallaþorpið Vent. Leiðin býður upp á einstaka fjallasýn og stórbrotið landslag.
Vegalengd: 10-11 km
Hækkun: 20 m
Lækkun: 900 m
Tími: 4-5 klst
Erfiðleikastig: Miðlungs
Miðvikudagur - Fiegls Gasthaus - Siegerlandhütte - Til baka
Krefjandi og skemmtileg fjallganga frá Fiegls Gasthaus (1.956 m) að Siegerlandhütte (2.710 m). Leiðin býður upp á stórkostlegt fjallalandslag og ekta alpaupplifun áður en gengið er sömu leið til baka.
Vegalengd: 14-16 km
Hækkun: 750 m
Lækkun: 750 m
Tími: 6,5-7,5 klst
Erfiðleikastig: Miðlungs
Fimmtudagur - ferðadagur
Allt gott tekur enda og nú förum við með rútunni til Zurich , flogið heim til Íslands með Icelandair
Til að tryggja sér sæti í ferðina þarf að senda póst á info@okkarferdir.is og greiða staðfestingargjald kr. 45.000 á farþega.
Eingöngu er boðið upp á gistingu á hótel Bäckelarwirt
Nánar um hótel Bäckelarwirt

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Innlend leiðsögn.
Flug til og frá Zurich með Icelandair.
Rúta til og frá Zurich.
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Ötztal sumarkort (veitir aðgang að kláfum, strætisvögnum, sundlaugum ofl.)
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Öll almenn aðstoð.
Ekki innifalið í verði:
Drykkir.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.
Ráðlagður búnaðarlisti
*Góður göngufatnaður
*Létt húfa
*Vettlingar
*Gönguskór
*Bakpoki fyrir: drykk, orkustykki, farsíma, peninga, skilríki, vind-/regnjakka og aukaföt
*Sólarvörn
Undirbúningur
Gönguferðir Okkar ferða hf. eru fyrir öll getustig.
Dagleiðirnar í þessari gönguferða eru um 9-16 km. Hraði dagleiða er með það að fyrirrúmi að upplifa umhverfið og njóta þess sem á vegi okkar verður.
Mikilvægt er að þátttakendur séu í góðu gönguformi. Besti undirbúningurinn er reglulegar fjallgöngur vikurnar fyrir brottför. Fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu er tilvalið að ganga reglulega upp að Steini í Esjunni í um 6–8 vikur fyrir ferð. Gott viðmið er að geta gengið upp að Steini og til baka á innan við 2 klukkustundum og líða vel eftir gönguna.
Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins velja sér sitt staðarfjall og sameina þannig hreyfingu, útiveru og undirbúning. Einnig er mikilvægt að huga að almennri líkamsþjálfun og styrkja þol til að aðlagast álagi og minnka líkur á meiðslum. Góður undirbúningur eykur bæði öryggi og ánægju á ferðinni.
Það er bæði gefandi og skemmtilegt að undirbúa sig fyrir svona útivistarferð og þeir sem leggja sig fram við æfingar upplifa ferðina enn betur og njóta hennar til fulls.
Vinsamlegast athugið að ef þátttakendur hafa ekki þá getu sem nauðsynleg er fyrir göngudaga ferðarinnar getur fararstjórinn farið fram á að viðkomandi sleppi einhverjum degi/dögum. Í staðinn er hægt að nýta sér aðstöðu hótelsins eða fara í gönguferðir á eigin vegum.